Djákninn
Þetta helsta
03.01.2006 18:25:05 / djakninn

Gleðilegt ár og NÝTT BLOGG

Gleðilegt ár kæru vinir.

Ég hef ákveðið að hætta hér á blog.central og er kominn með nýtt blogg:

www.123.is/thorkell


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 13:28:40 / djakninn

Jólagjafir

Hvað langar mig í jólagjöf?

Eiginlega ekkert.  Mig vantar svosem ekkert.  Hér er hins vegar listi yfir það sem vakið hefur áhuga minn:

Bók: Guðni Bergs - fótboltasögur
Bók: John Lennon - Ævisaga
Bók: Rokland - Hallgrímur Helgason
CD: Ampop - My Delusions
DVD: Star Wars - Episode III
DVD: Silvía Nótt


» 103 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 08:26:49 / djakninn

Unnið myrkrana á milli

Allt að verða crazy í vinnunni.  Unnið langt fram á kvöld og ég veit ekki hvað. Kontóristar vinna líka aukavinnu.  Nema þá sumir.  Það er enginn tími til þess að blogga.  Ætla að hætta hér á blog central og starta nýju bloggi.  Kemur í loftið 1. jan.

Lifið heil.


» 107 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 00:38:38 / djakninn

Þetta er algjör snilld

Leeeeeeerrooooooy Jenkins kominn í Jeopardy í USA.  Það er algjör snilld.  Sjáið myndbandið hér.

» 110 hafa sagt sína skoðun

14.11.2005 09:42:18 / djakninn

Kítlaður

Ég var kítlaður af Halli. Það þýðir að ég þarf að skrifa einhverja hluti um sjálfan mig.

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

1.Fara á leik með Liverpool á Anfield
2.Eignast þak yfir höfuðið
3.Gefa út sólóplötu (er í smíðum)
4.Nördast mikið
5.Fara í partý hjá Haraldi Ólafssyni, veðurfræðingi á RÚV
6.Komast í toppform
7.Skrifa skáldsögu

Sjö hlutir sem ég get gert:

1.Spilað fótbolta
2.Lyft lóðum
3.Spilað tölvuleiki
4.Drukkið bjór
5.Rekið við
6.Ort
7.Bullað endalaust

Sjö hlutir sem ég get alls ekki gert:

1.Verið fljótur að hlaupa
2.Verið stressaður
3.Rakað mig vel (verður alltaf eitthvað eftir)
4.Borðað óhollan mat án þess að fá samviskubit
5.Verið heillandi
6.Drukkið áfengi án þess að verða blindfullur
7.Borðað sviðnar rollulappir

Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

1.Brjóst
2.Mjaðmir
3.Rass
4.Hár
5.Bros
6.Rödd
7.Nef

Sjö frægar konur sem heilla:

1.Angelina Jolie
2.Gerður G. Bjarklind
3.Inga Lind
4.Linsay Lohan
5.Tiffani Amber Thiessen
6.Beyoncé Knowles
7.Carmen Electra

Sjö orð eða setningar sem ég nota mikið:

1.Hvað er málið?
2.Ping
3.Ég ætla AÐEINS í tölvuna
4.Ja, hérna
5.Ertu ekki í gríninu?
6.La Camisa Negra
7.Oj

Sjö hlutir sem ég sé einmitt núna:

1.Vinnutölvan
2.3 símar (Borðsími og 2 gsm)
3.Spegilmynd af fola í skjánum
4.Akranes og Faxaflóamið út um gluggann
5.Winamp, NP: Hjálmar - Bréfið
6.Desktop wallpaper: Dark side of the moon.
7.Ótrúlega fyndna mynd af Þorsteini í Nýborg og Halli Ásgeirs.

Ætli maður þurfi ekki að kítla einhverja tvo aðra. Þóra, þú ert hér með kítluð og Einar Hróbjartur.

» 119 hafa sagt sína skoðun

04.11.2005 09:59:12 / djakninn

La Camisa Negra

Ég veit ekki hvað þetta er með mig og latino tónlist þessa dagana.  En ég er mjög hrifinn af kólumbíska listamanninum Juanes.  Eitt laga hans, La Camisa Negra, hefur verið vinsælt undanfarið.  Þetta er þrusuflott lag.  Skemmtilegt guitarro og bucho söngur.  Myndbandið er hressandi og Juanes er flottur fýr.  Smelltu hér til að sjá myndbandið.

» 139 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 12:01:50 / djakninn

Aðdáendaklúbbur Derrick

www.derrick-fanclub.de.  Síðan er að vísu á þýsku, en það er bara hressandi að dusta rykið af hinni ágætu germönsku mállýsku.  Ég skrifaði í gestabókina, sem er hér (Mitt entry var númer 414).  Ég ætla fjótlega að safna undirskriftum hjá þeim sem vilja góðkunningja okkar allra aftur í sjónvarpið á föstudögum.  Það verður ljúft að horfa á kallinn á meðan allir hinir horfa Idol-stjörnuleit (sem btw gæti alveg eins heitað: Simmi og Jói).


» 97 hafa sagt sína skoðun

26.10.2005 13:27:33 / djakninn

Bjórkvöld Congoboltans

Nú ætlum við í Congoboltanum að hafa hitting á laugardagskvöldið nk (29. okt).  By default ætlum við að hittast í húsakynnum Gunnars Stefánssonar að Dvergabakka 34 (held að þetta sé rétta heimilisfangið).  Það er reyndar ekki ennþá staðfest hvort við ætlum að vera þar.

Við ætlum að melda okkur hérna í kommentunum.  Meldið ykkur hvort þið eruð klárir þennan daginn og hvort þið eruð sammála mér um tilhögun.

Ég legg til að við mætum snemma, svona kl. 18:00, fáum okkur að eta og drekkum nokkra bjóra.  Ég legg til að verði grillað, hver og einn mæti með ket og drykki.

Spurning hvort Gunnar og co. eigi grill.  Það væri auðvitað langskemmtilegast.  Ef það verður grill, þá býð ég mig fram í grillmeistarann.

Annars er það sjálfssagt eitthvað take-away.  Við förum nú ekki að elda inni.

Við gætum líka alveg mætt bara eftir matinn.  Tjáið ykkur um þetta.


» 119 hafa sagt sína skoðun

26.10.2005 00:35:22 / djakninn

Það er margt fyndið á netinu...en þetta slær allt út

Super Timor flugnaeitrið...frönsk auglýsing frá áttunda áratugnum.

Super Timor


» 143 hafa sagt sína skoðun

24.10.2005 15:12:31 / djakninn

Þær eru farnar

Konurnar eru farnar úr húsinu.  Bjór og vindlar í boði og stripparinn á leiðinnni.

» 149 hafa sagt sína skoðun

19.10.2005 09:33:50 / djakninn

Gasolina

Lagið Gasolina með spænska hip-hop listamanninum Daddy Yankee er mjög hressilegt.  Hér er hægt að stream-a myndbandið, sem er einnig mjög hresst.  Gott er að lesa textann á meðan og jafnvel dansa við þetta magnaða tónverk.

  Hér er svo textinn, þannig að hægt er að syngja líka:

Gasolina

Da - ddy Yan- kee !
zumbale mambo pa' que mi gata prenda los motores,
zumbale mambo pa' que mi gata prenda los motores,
zumbale mambo pa' que mi gata prenda los motores,

Que se preparen que lo que viene es pa que le den, Duro!

Mamita yo se que tu no me va quitar(duro!)
Lo que me gusta es que te dejas llevar (duro!!)
todo los weekenes ella sale a vacilar (duro!!)
mi gata no para de janguiar porque

A ella le gusta la gasolina (dame mas gasolina!)
Como le encanta la gasolina (dame mas gasolina) 2x

Ella prende las turbinas,
No discrimina,
No se pierde ni un party de marquesina,
Se acicala hasta pa' la esquina,
Luce tan bien que hasta la sombra le combina,
asecina, me domina
janguea en carros, motoras y limosina,
Llena su tanque de adrenalina,
Cuando escucha el reggaeton en la cocina.

A ella le gusta la gasolina (dame mas gasolina!)
Como le encanta la gasolina (dame mas gasolina!) 2x

(yo!)Aqui yo soy de los mejores
No te me ajores
En la pista nos llaman "Los Matadores"
Tu haces que cualquiera se enamore
Cuando bailas al ritmo de los tambores
esto va pa'las gatas de to'colores
Pa' la mayores, pa' la menores
Pa' las que son mas zorras que los cazadores
Pa' la mujeres que no apagan su motores

Tenemo' tu y yo algo pendiente,
Tu me debe' algo y lo sabe',
Conmigo ella se pierde,
No le rinde cuentas a nadie 2x

zumbale mambo pa' que mi gata prenda los motores,
zumbale mambo pa' que mi gata prenda los motores,
zumbale mambo pa' que mi gata prenda los motores,
Que se preparen que lo que viene es pa que le den, Duro!

Mamita yo se que tu no me va a quitar (Duro!)
Lo que me gusta es que te dejas llevar (Duro!)
todos los weekenes ella sale a vacilar (Duro!)
mi gata no para de janguear porque

A ella le gusta la gasolina (dame mas gasolina!!)
Como le encanta la gasolina (dame mas gasolina!!) 2


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2005 20:40:17 / djakninn

Myndir komnar inná myndasíðu

Jæja, þá eru komnar inn 2 nýjar myndaseríur á myndasíðuna mína.  Tæknilegum örðugleikum hlýtur nú að fara að ljúka fljótt með þetta myndalén, en þeir hafa verið allnokkrir.

Myndaalbúm 1:
Ég og Þóra slógumst í för með Einari H. og Ágústu laugardagskvöldið 13 ágúst sl.  Haldið var á Nasa, þar sem Hjálmar voru að spila.

Myndaalbúm 2:
Ég, Þóra, Bylgja og Guðjón fórum í sumarbústað til að jah...éta kjöt og drekka mjöð helgina 8.-10. október.  Einnig mættu á svæðið Einar H. og Ágústa á laugardagskvöldinu.


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.10.2005 08:59:27 / djakninn

Hvað á að gera við kynferðisafbrotamenn?

Hvað er til ráða með ófreskjur á borð við föður Thelmu Ásdísardóttur?  Ég get einhvernveginn ekki alveg skilið þá áráttu að nauðga 4 dætrum sínum í áraraðir og selja þær til vina sinna til að fjármagna eigin áfengis- og eiturlyfjaneyslu.  Með þessu er faðir barnanna búinn að eyðileggja líf þeirra.  Til hvers var hann eiginlega að eignast þær.  Það er mikil blessun fyrir mannkyn allt að kvikindi eins og þessi maður séu komin undir græna torfu.

Maður á erfitt með að gera sér í hugarlund þá kvöl og pínu sem þessar stelpur hafa gengið í gegnum.  Þó meðferðarúrræði séu vissulega til staðar, þá á þetta ekki að geta gerst.

Allsherjarnefnd hefur nú afgreitt frumvarp Ágústs Ólafs Ágústssonar um að afnema fyrningu í kynferðisafbrotum gegn börnum.  Nefndin treystir sér þó ekki til að afnema fyrninguna, heldur lengir frestinn um 4 ár.  Þarna er ég ósammála Allsherjarnefnd.  Fyrning kynferðisafbrota finnst mér bara eiga við þegar afbrotamaðurinn var sjálfur barn þegar brotið átti sér stað.  Ef hann er kominn til vits og ára og gerir sér fyllilega grein fyrir brotinu, þá eiga þessi mál ekki að fyrnast.  Eðlilega, þá eru fórnarlömb ekki alltaf tilbúin til þess að leysa frá skjóðunni fyrr en þau sjálf eru orðin fullorðin.  Stundum er ástæðan sú að börnin átta sig ekki á því sem er að gerast.  Kannski treysta fórnarlömb sér ekki til að leysa upp fjölskylduna, því þau vita ekki hvað verður þá um þau að loknum málarekstri.

Þó ég sé ekki almennt sérstakur fylgjandi þungum refsingum, þá er þetta öðruvísi þegar um ofbeldisbrot er að ræða.  Fyrir stuttu síðan var nauðgari dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi.  Svona dómsmál eru fordæmisgefandi, bæði fyrir réttarkerfið og fyrir afbrotamenn.  Það þarf að loka þessa menn inni, bara svo fórnarlömbin sofi róleg.

Best væri náttúrulega að vana þessa menn með ryðguðum hrossgeldingartækjum.

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.10.2005 08:30:57 / djakninn

John Barnes Hallsson fæddur

Í morgun voru skilaboð á símanum mínum þess efnis að góðvinur minn, Hallur Ásgeirs, væri orðinn pabbi.  Hallur og Lovísa fá hér með innilegar hamingjuóskir frá mér og Þóru.
Spurning hvort maður geri eins og Carlos í Desperate Housewives, setji placebo í staðinn fyrir pilluna hjá Þóru.
Hva, má maður herma?

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2005 10:03:55 / djakninn

Upplausn í mannanafnanefnd

Mannanafnanefnd sagði af sér nú á dögunum vegna ágreinings sem upp kom vegna ritunar á nafninu Eleonora.  Einhver umsækjandi sótti margsinnis um nafnið Eleonora, en var nefndin ekki sammála umsækjanda um ritun nafnsins.  Mannanafnanefnd lagði til að nafnið yrði ritað Elónóra.  Dómsmálaráðuneytið bað nefndina tvisvar um að skoða málið aftur.  Nánar má sjá um nefndina hér.   Þá er einnig mjög áhugaverður vefur um þýðingu mannanafna hér.  Skrá yfir öll íslensk mannanöfn er síðan hér.  Ég mæli sérstaklega með nafninu Esekíel Betúel.

Ég hef gefið kost á mér í Mannanafnanefnd, en ekki hefur verið mikið um svör.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5